30.07.2007 11:34:03 / Bleikust

Mánudagur

:) vúbí :)

fæ helminginn af fluginu mínu austur um versló borgað af tengdó :D henni fannst ómögulegt að við myndum keyra á föstudaginn beint eftir vinnu og aftur suður á mánuadginn. 18 tímar allt í allt á 3 dögum.

Jeij :) get þá verið lengur :D

En dagurinn í dag það sem komið er:

Cherios í morgunmat

Drykkjarjógúrt í kaffinu

Sýndist vera pasta í hádeginu

 Drykkjarjógúrt í kaffinu

Veit ekki hvað verður meira í dag, svaf lítið og ætla að reyna að þrífa í kvöld svo ég veit ekki hvað verður í kvöldmatinn, gæti orðið orkuríkt. Dagurin verður því ekki neitt spes.


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 11:26:39 / Bleikust

sunnudagur

Var ekki góður matarlega.

2 pizzasneiðar (miðstæð) í morgunmat með pepsi max

3brauðsneiðar með tómatsósu, lauk og osti og pepsi max kl 17

1 samloka með skinku og osti og hamborgarasósa (dýfa í) um kl 23

Smá nachos í bío.

 

Plús það var smá snakk á laugardagskvöldið.


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 19:12:26 / Bleikust

Vúhí!

Er að fara á djamm á eftir :)

og ekki skemmir að ég uppgötvaði að ég er 400g léttari en ég var um daginn, ca viku held ég.

En ég var að vigta mig, miðjan dag :)

Ok, maturinn:

cherios í morgunmat

Hálf kringla og hálfur snúður

Er að fara að borða afgang af grítu, spagettí, brauðsneið með smjöri og tómatsósa. Pepsi maximus með.

Fékk mér í dag líka poka af nóa rjómakúlum.

 Nammi dagur í dag :)

Vonandi gengur þetta vel áfram. Alveg sátt við nammidaginn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 13:40:10 / Bleikust

vúbdídú

Jæja.. matardagbók

 Morgunmatur: drykkjarjógúrt, létt eitthvað dæmi 110 eða 120 hitaeiningar sýndist mér á flöskunni eða kannski 150?

10kaffi drykkjarjógúrt sama sort

Hádegismatur: Pastadótarý með slatta af grænmeti í og 2 sneiðar bughette eða hvað það heitir nú með smá grænu létt og laggott. Fékk mér frekar lítið af pastanu því eg var ekki viss hvernig mér fyndist það, var svona fyllt dæmi. held ég hafi fengið 1/3 úr diski. Drakk svo 3 glös af vatni með. Þau eru nú samt svo smá þarna.

 Kaffinu kl 14:30 verður 2 kivi

 Kvöldmatur er Grýta með tómatsósu og smá spagettý og ein brauðsneið með smjörva. líklega verður Pepsi Maximus með.

 Ok, þetta er ekki albad dagur en mætti vera betri held ég. Reyni að borða temmilegan skammt í kvöldmatnum.

 

góða helgi


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 08:55:50 / Bleikust

Hallóhalló

Úff, það er sko erfitt að komast í gírinn aftur.

Nýja vinnan gengur vel, 3 vikan að byrja. Búin að vera svooo þreytt þessar 2 vikur.

Var orðin 79 kg um helgina. sem er í fínu lagi því ég var að mig minnir næstum 81kg þegar ég kom heim frá Portúgal! oboj!

En nú er að gefa í. Samt svoldið rugl í gangi því að ég er komin í mötuneyti og veit ekki alveg hvernig ég á að haga kvöldmatnum. Morgunmatur, kaffi og síðdegiskaffi er í lagi (cherios, drykkjarjógúrt og ávextir) en svo er hádegismaturinn hér og hann ern ú bara nokkuð hollur. En þá er það kvöldmaturinn. Elda eða ekki elda.. hvernig mat þá.

 Jæja.. skrifa meira næst, sem verður vonandi fljótlega.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 18:29:44 / Bleikust

Komin heim :)

Já ég er komin heim og skemmti mér ógeðslega vel :)

Man ekki töluna sem kom á vigtina, man að hún var ekki slæm en ekki eins góð og ég hafði vonað.

Hótelið var ágætt, ágætar íbúðir en garðurinn var frábær. Svo voru 2 barir (eiginlega einu húsi 2 hæðum, sundlaugabar á neðri hæðinni á daginn og svona garðbar á kvöldin á efri hæðinni).

trúbbar með skemmtara á kvöldin, nóg að drekka á barnum, fullt af kokteilum :) og varð barþjónninn svo fullur eitt kvöldið að mamma og vinkona hennar fengu frítt á barnum og voru úti til sjö! hún hefði sko mátt bjalla í mig og segja mér að hún væri sko ekki á leið í háttinn eins og ég hélt þegar við fórum ;)

Það var farið á ströndina, prufað brimbretti ( var aðeins stærra en metri), farið í algarve shopping (2x því það voru 4 skýjaðir dagar ;( ) og verslað í nike búð (nánast einu fötin! á því stuttbuxur, íþróttabuxur, 2 boli og nike peysu og kallinn 4 boli og 2 buxur) keytpi mér 1 peysu og 2 boli í viðbót og kallinn 2 boli.

Það var farið út að borða, flatmagað í sólinni, hamast í sundlaugagarði (Slide and Splash) og jet ski.

Keyptum okkur líka blakbolta og körfubolta sem við ætlum að leika okkur með á kvöldin og um helgar. Nokkrar körfur hér í hverfinu og svo vorum við bæið í blaki sem krakkar og unglingar.

 Kom heim í nótt og ætla ekki að stíga á vigt á næstunni. Fer í 2-3 viðtöl núna á næstunni.

Náði þokkalegum lit úti, en hefði viljað geta sólað mig þessa 4 daga sem við misstum. Lítið hægt að gera þegar er svona veður.


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 18:03:44 / Bleikust

2 dagar!

Um þetta leyti á þriðjudaginn verð ég í flugi til Portúgal.

Allt er í raun tilbúið. Búið að kaupa smá gjaldeyri, fá íbúðapíu (læt alltaf fylgjast með íbúðinni minni). Fötin hrein bara á eftira ð setja í töskuna. Sólvörn og allt það dótarý tilbúið.

Fór í vax á föstudaginn og var það ekki alveg nógu vel gert. Gleymdi smá blett í bikinilínunni sem ég fæ lagað á morgun. Svo var tekið undir höndum en hárin voru eiginlega of stutt og hún notar bara venjulegt vax (heyrði í gær að það væri til spes vax fyrir stutt hár?) og húðin undir höndunum er ekki að fíla þessa meðferð. Eldrauð og aum undir höndunum! En lappirnar eru fínar, bikinilínan ágæt.. mætti vera betri. Fer alllavega ekki þangað aftur.

Ég fór ekki í ræktina í gær (skamm skamm) bara leti.. en mér fannst ég líka endurnærð í ræktinni í dag. Lyfti betur, auðveldara og þyngra í sumu.

Tók svo 20 mín í orbitrek í stað 10 alveg á full speed eftir að hafa lyft og lak svitinn sko í taumum niður. úff... var svoo þreytt á eftir.. hehe en ánægð. Svo var bara magaæfingar, bakfettur og teygjur.

Var með ipodinn á handleggnum :) voðalega fínt. ÞArf að bæta við tónlist er að fara að setja Mika og smá Queen lög. Búin að setja eitthvað inn. Komið ágætt safn. Vantar samt eitthvað í rólegri kanntinum til að hafa þegar ég teygi.

Jæja nóg í bili.. stefnan er á að fara í ræktina á morgun og kannski smá brennslu á þriðjudaginn. Sé til hvort ég fer í ræktina þann dag eða bar aút að labba áður en við förum.

 Ég mun kannski ekki hafa tíma til að blogga áður en ég fer. Segi kannski frá tölu morgundagsins og hvernig myndirnar og mælingin kemur út.

 

Annars segi ég bara adios!


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 10:44:11 / Bleikust

4 dagar brummi í lag og Ipod!

Jám.. bara 4 dagar :) í Portúgal.

fór á verkstæðið í gær með bílinn og komst því ekki í ræktina. Þau voru svo indæl að þau skutluðu mér heim svo ég þyrfti ekki að taka stræto :)

Fór svo hjólandi í vinnuna.. svo seinnipartinn var hringt og sagt að bílinn væri tilbúinn :) búið að gera við hann :) jeij! og bara brot af því sem brimborg áætlaði í þessa viðgerð.. hjúkk.

nema hvað að ég var að vinna til sjö.. fékk vinkonu mína til að ná í mig heim og dröslaði hjólinu í stræto svo ég yrði fljótari heim en hjólandi. Því þau á verkstæðinu yrðu eitthvað yfir kvöldmat.. en ekki lengi.

Svo ég náði í bílinn rétt fyrir átta :) fór svo heim.

Kallinn kom svo heim um 23 ég hafði lagt mig hálftíma áður, hélt hann kæmi ekki fyrr en hálf tólf tólf (miðnætti) heim þannig að ég var bara háttuð þegar hann kom.

Hann gaf mér sambandsgjöf :) við eigum 8 ára afmæli á mánudaginn. Fékk ipod Nano 4Gb. jebb :) flott gjöf. Fékk líka svona strapp dæmi til að setja á handlegginn til að hafa Ipodin í þegar ég er í ræktinni. :) hann hugsaði fyrir öllu.

Svo vegna þess að kallinn gleymdi að seinka símanum um 3 tíma þá hringdi klukkan í símanum hans um miðja nótt og ég var alltaf að vakna eftir það.. svaf næstum svo yfir mig í vax! ég sem ætlaði að fara smá í ræktina áður. Er eitthvað ræfilsleg núna.. þreytt, verkjaseyðing í höfðinu og svoleiðis. Fór í vax og labbaði svo í vinnuna. Mætt því snemma. Er með Ipodinn í eyrunum :D

Ræktin um helgina.. bæði laugardag og sunnudag, þrífa utan af gestasængunum og rúminu okkar, byrja að pakka og þrífa bílinn extra vel.. ætlum að skella honum á sölu.

 

Góða helgi skvísur :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 13:04:13 / Bleikust

6 dagar jibbý!

Já núna er sko minna en vika í ferðina :D

Átakið gengur vel. Sátt við matinn sem ég borða, hreyfingin er góð.

Ég tók hvíld á mánudaginn, eða þannig. Þreif allt hátt og lágt heima! Tekið til, gengið frá þvotti, þurrkað af, speglar pússaðir, baðherbergi þrifið, ryksugað og skúrað. Svo eldaði ég lasagnea og vinkona mín kom í mat því kallinn er í útlandinu að vinna.

Í gær svaf ég yfir mig með ræktina, var svooo þreytt frá deginum áður hehe. Fór því á hjólinu í vinnu með íþróttatöskuna og hjólaði svo í lok vinnudags í ræktina og tók vel á því.

svo var viðtal í morgun svo ég fór ekki í ræktina. Leyst rosalega vel á þetta en komst að því í morgun að ég yrði að vinna ein. Aham.. ein alla daga, bæri alla ábyrgðina... það bara kæmi enginn þarna inn og einu samskipti mín við umheiminn væri í tölvupósti og gegnum síma. Sumt svoldið töff í sambandi við starfið.. en þetta er svoldill stór mínus. Hljómar eins og maður verði að drattast í vinnu í hvaða ástandi sem er, hvort sem maður væri með flensu eða what ever því enginn gæti coverað fyrir þig. Sjensinn að maður gæti tekið langa helgi af og til. Plús að ég verð að vinna með öðru fólki. Annars er lífið ekkert skemmtilegt.

Ég er bara til þrjú í dag í vinnunni, ég keyrði beint heim eftir viðtalið og skellti í íþróttatöskuna og hjólaði í vinnu, svo sami leikur og í gær.. hjóla í ræktina eftir vinnu og taka á.

Kallinn kemur heim einhverntímann á morgun :) cant wait! voðalega er maður háður honum. Finn þetta mest þegar ég vakna á morgnanna og fer að sofa. Matmálstíma líka. Þá er maður ósköp einn eitthvað. Plús að geta ekki hringt í hann yfir daginn og heyrt í honum hljóðið.

 Jæja.. nóg af voli. :D ætla að klára matartímann minn. Fiskur í matinn :D

kv

Nínas


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 17:41:35 / Bleikust

9 dagar jeij!

Jæja.. þá er helgin að verða búin (samt frí á morgun ;) jösss !)

Helgin hefur bara verið nokkuð góð. Fór reyndar ekki í ræktina á föstudaginn, var eitthvað slöpp, var síðan ein í vinnunni á móti lyfjafræðingnum svo það var nóg að gera.

Sem betur fer kemur sumarafleysingamanneskjan á þriðjudaginn, hefði ekki meikað að vera ein alla næstu viku, en sú sem vinnur með mér hún verður í fríi. Er í útlöndum.

En í gær tókum við hressilega á því. Fórum hjólandi í ræktina (stutt að fara, bara 3-4 mín kannski) og tókum vel á, hjóluðum svo í sund, syntum 6 ferðar og slökuðum svo á. Svo var hjólað heim.

Mataræðið var bara nokkuð gott. Leyfið mér samt snúð í gær. Langaði svooo í eitthvað og hún Rósa frænka lét sjá sig í gærkveldi. Fékk líka svakalegan höfuðverk í gærkvöldi.. ekki gaman.

Svo í dag fórum við í Laugar því það er lokað í Spöng og tókum vel á eins og vanalega og skelltum okkur svo í laugina. Rosalega mikið af fólki í sundi.

Svo fórum við og fengum okkur jógúrtís í Ísbúðinni Álfheimum. Rosalega góður og er bara 3% fita.

Ætla að sjá til hvað ég geri á morgun. Þar sem kallinn er að fara út að vinna þá gerir hann ekki mikið nema magaæfingar og armbeygjur á hótelherbrginu, ég ætla að reyna að vera duglega og svo er það bara næsta helgi sem verður tekin með trompi. Því tel ég að fínt sé að taka frí á morgun.

 Ég er farin að finna mun á fötunum mínum :D ótrúlegt en satt! :D haha. Fór í nýþvegnar gallabuxur áðan og þær voru pínu víðari á mig. Fann vel mun. Vonandi verður bara enn meiri munur daginn sem ég fer út! :D vonandi sé ég 76,9 þá :D miðað við töluna fyrir helgi þá þarf ég að losna við 1,3 kg ... vonandi fer slatti með henni Rósu :D

 Hafiði það gott skvísur!


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 10:05:50 / Bleikust

11 dagar!

Þessa viku höfum við kallinn verið eitthvað tuskuleg.

Fórum í ræktina á þriðjudag og miðvikudag. Fór svo í klippingu á miðvikudaginn :) sátt við útkomuna.

Svo í gær vaknaði ég með höfuðverk, kallinn svaf lengur þvi hann þurfti að vinna allan daginn, fara heim í smá tíma og vinna svo alla nóttina. (fær líka frí í dag frá ca hádegi).

Nema hvað að ég svaf lengur og fór því ekki í ræktina, náði að losna við höfuðverkinn en hann var alltaf að láta á sér kræla af og til yfir daginn og var ég komin með svakalegan höfuðverk í gærkvöldi. Var svo líka skrítin í maganum (og er enn) þegar ég vaknaði svo ég lá bara í rúminu þar til ég átti tíma í vaxi. Sú sem gerir brasilískt fer til útlanda á morgun, svo ég varð að fara í dag. Þetta var ekki þægilegt, en ekki jafn sárt og ég hélt. Fer svo aftur í næstu viku og læt taka fætur.

Planið er að reyna að fara í ræktina eftir vinnu í dag og á morgun. Þá næ ég 4x í þessari viku. Sem er allt í lagi. Sé til með Sunnudaginn.

Svo fer kallinn út á mánudaginn, vinna blessaður. Furðulegur mánuður hjá honum. á 1 1/2 mán fer hann til útlanda 3svar.

 Mataræðið er búið að vera bara fínt. Alveg sátt sko. Ekki lést neitt meir, fór upp í 78,1 aftur.. enda er maður að byggja upp massa. Svo er ég að byrja á blæðingum um helgina.

Jæja

Hafiði það gott um helgina, læt vita um hreyfingu helgarinnar :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 21:29:36 / Bleikust

Tíminn tekur hænuskref, ég vil taka risaskref

Já.. ekki góðar fréttir af bílnum. Slatti sem þarf að gera, margt smátt gerir eitt stórt sem er yfir 100 þús kr í áætlaðan viðgerðarkostnað. ætlum að ath með önnur verkstæði. Virkar allt of dýrt.

 Jæja, við mættum galvösk (eða í raun pínu mygluð) í ræktina í morgun. Tók bara mjög góða æfingu. Tók alltaf 2x 15 í hverju tæki í síðustu viku, nú tók ég 3x 15. Stolt :D

Svo voru það 200 magaæfingar og 40 bakfettur. Er mjög aum í bakinu núna. Gat ekki fleiri bakfettur í morgun. Ætlaði að gera 50. Einhver benti á að þetta gæti verð góð æfing við hliðar/bakfellingunum á síðunni, mittinu what ever.. skiljiði?

Hjólaði í vinnuna og hjólaði góða brekku á leiðinni heim. Kjúklingapíta í matinn.

Svo rétt dottaði kallinn og er orkumeiri núna og hljóp út til að tjöruhreinsa bílinn.. hehe og reyndi að draga mig með. Ég er búin á því í dag. Finn að ég er ekki jafn orku mikil og í síðustu viku. Enda að byrja á blæðingum eftir nokkra daga. Plús svaf ekki nóg síðustu tvær nætur. Skil ekki hvernig hann nennir þessu. En jæja :D flott ef hann nennir.

 Keypti í dag slatta sem ég þarf með í ferðina. Erum að verða ren á shampoo og næringu. Keypti fyrir okkur bæði og mitt er pínu dýrt.. eða um 800 kr hvort um sig. John Frieda :D ofboðslega ánægð með þetta merki.

Svo var það aftersun, 20 vörn (var ekki til 10 ætlaði að kaupa eina af hvoru), vörn fyrir mömmu og aftersun (ég vinn í apóteki = afsláttur), svo var það imodium, svitalyktareyðir (minn er almost out), bómul og sótthreinsandi, plástra, afterbite penna, alovera gel, rakvélarblöð fyrir kallinn og raksápu, hreinsiklúta. Jám jám. Slatti.. man ekki meira, ef það var eitthvað. En þetta kostaði 11 þús kr takk fyrir pent, og fékk ég tæpar 3 þús í afslátt.

Nú á ég eftir að kaupa vörn fyrir mömmu (hún vill froðu og áttum bara 12, vill eina líka í 20) og vörn fyrir okkur (við ætlum að nota vichy og vantar nr 10). hmm ja og linsur.

Held að annars sé ég bara tilbúin, á eftir jú að kaupa gjaldeyri.

Svo bara pakka eftir 13 daga.

Vil óska þér Skelfa góðrar ferðar og góðrar skemmtunar úti á Tenerife :) minnir að þú farir á morgun. Vonandi sástu draumatöluna :)

Hafiði það gott skvísur!


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 09:24:01 / Bleikust

15 dagar og bíllinn bilaður!

jahá!

Bílinn er bilaður.

Furðulegt hvernig hann hagar sér. Hefur komið af og til fyrir að það kom skrítði hljóð þegar maður ætlar að starta en tekst í næsta.

Í gær ætlaði ég að keyra til vinkonu minnar, ætluðum 3 að hittast, var sest inn og búin að starta (no problem þá) þegar síminn hringdi og hún ætlaði að hitta mig hjá mér.

Svo 2 tímum seinna erum við á leið út í búð, þá neitaði hann að starta sér og eftir smá tilraunir tókst það, en við höfðum miklar áhyggjru, hafði aldrei látið svona áður.

Gleymdum svo smotteríi út í búð og kallinn ætlaði að skjótast eftir því en þá neitaði bílinn agljörlega að fara í gang ;(, svo í morgun ætluðum við að reyna og fara á honum í ræktina en þá neitaði hann að fara í gang líka. Vorum sein svo við fórum inn í stað þess að labba. Ekki langt að fara, en vorum sein svo. Hringdum strax í verkstæðið, brjálað að gera og hringdu þeir til baka rétt fyrir níu.

Fór út til að vera tilbúin að ýta ef kallinn þyrfti hjálp en þá rauk hann í gang í fyrsta! furðulegur bill þetta.

En við fáum að troðast að á verkstæðinu, sem betur fer!

Ætlum að sjá til í hvernig stuði við erum í kvöld og fara í ræktina, tökum kannski bara létta æfingu.

Er þetta samt ekki týpiskt? auka útgjöld svona stuttu fyrir utanlandsferð!


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 10:58:58 / Bleikust

Frídagur

Í dag er frídagur hjá mér. Kannski göngutúr. Kemur í ljós. Var sátt við gærdaginn matarlega og hreyfingarlega :) eiginlega bara úber sátt :D

Vigtaði mig í gamni í morgun og sá svooo fallega tölu! 77,9kg :) óboj!

Vonandi helst þessi tala sem allra allra lengst.. og þetta er sko hvatning í viðbót við Portúgal hvatninguna um að standa sig vel! :)

Ný vinnuvika á morgun og ný átaksvika :) get ekki beðið eftir næstu helgi og sjá hver árangurinn verður þá!

16 dagar til stefnu! :D

Update kl 17:00 -> Fór kl 15 í göngu með vinkonu minni. Smá rigning þegar við lögðum af stað og migandi rigning á bakaleiðinni.

Kom heim um korter yfir 16. Góður göngutúr. úff.. þreytt núna.. og blaut! hehe

Hress en svöng! ætla að stökkva út í búð og kaupa í lasagnea :D

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 16:35:25 / Bleikust

17 dagar og áfram höldum við.

jæja.. búinn að vera æðislegur dagur! :D

Við fórum hjólandi í sund, urðum að taka smá krók (fara lengri leið) því það var svo lint í framdekkinu hja mér. Fundum bensínsstöð og dældum lofti í og fórum svo í sund. Syntum nokkrar ferðar, fórum svo í pottin smá stund, svo í buslulaugina og sóluðum okkur og svo aftur út í laug og syntum meira. Held við höfum synt allavega 350m bara nokkuð gott þar sem við höfum hvorugt synt í meira en ár. (síðustu skipti sem ég fór í sund, í vikunni, þá var ég bara í pottinum). Svo var hjólað heim.

Nú er ég að japla á jarðarberjum.. fá smá nammi fíling. Svo á ég ddv ís í frystinum, svo ég er good to go hvað nammidag varðar.

Er að fara í heimsókn til frænku minnar. Förum kannski smá rölt um hverfið.

 Er það eðlilegt að þegar maður er byrjaður að hreyfa sig svona að maður fillist þvílíkri orku og er bara á fullu? Leiðist að vera heima á kvöldin, vil bara helst út að ganga eða eitthvað hehe. Heimsókn. Eitthvað sem ég nennti alls ekki, leið bara vel upp í sófa. Vonandi helst þessi orka áfram :)

Hafiði það gott skvísur!

Update kl 21:45 -> jæja fór í heimsóknina.. tókum góðan göngutúr. Er svoo þreytt núna.. var bara kalt þegar ég kom heim.. einhver hrollur í mér. Heitt í framan samt. Gæti hafa brunnið.. HEld ég fari snemma í rúmið í kvöld. Allavega til að lesa og líklega sofa! :D hehe

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox