13.2.2008 05:14:37 / Bleikust

Ég

Sæl Ég er 21 árs (á þessu ári). Er lærður lyfjatæknir og er að vinna við það. Ég er barnlaus en er í sambúð. Við kærastinn minn vorum saman í grunnskóla og byrjuðum saman þegar við vorum 15 ára.

 Ég var alltaf grönn og venjuleg stelpa en þegar ég flutti suður ásamt kærastanum þá fitnaði ég. Ég var orðin 78 kg vorið 2003. Ég þyngdist um 18 kg ca á 3-4 árum. Ég fór á átaksnámskeið vorið 2003 og léttist um 3 kg og styrktist. Það hélst í nokkra mánuði eða þar til ég fór út jólin 2003 og aftur sumarið 2004. Þá þyngdist ég aftur og í 78 kg. Svo bættist aðeins meira á mann og þegar ég byrjaði hjá einkaþjálfara var ég 79kg! Ég er 168cm á hæð.

Ég byrjaði nokkurn veginn í átaki í árs byrjun en hef verið misdugleg. Mataræðið hefur verið tekið smá í gegn. Ekki eins mikið af skyndibita. Verst er að ég dett í það oft frá föstudagskveldi eða þá frá laugardegi fram á sunnudag,þá er ég ekki að tala um áfengi, heldur nammi og sukkmat. Hreyfingin hefur verið upp og niður. Alveg frá 0-4x í viku. Þetta þarf að laga. Finn að mér líður betur þegar ég hreyfi mig en letin er mig alveg lifandi að drepa.

Jæna :) nú skulum við sjá hverju fram vindur :) uppfærsla verður einhverntímann í sumarlok...vonandi ný manneskja :)

Hmm tókst ekki að skapa nýja manneskju, sú gamla, feita er enn hérna á vappi.. enn nú er þetta sko komið í hart! Komin í gönguhóp, fer vonandi 2svar í viku (vonandi þá að ég komist í bæði skiptin) og út að skokka 2 kvöld í viku með mágkonu pabba og svo 3svar í viku á átaksnámskeið :) fyrsta námskeiðið af 5!

Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox